Íbúar stöðugt minntir á harmleikinn

Veraldlegar eigur mannsins voru settar í geymslu sem er opin …
Veraldlegar eigur mannsins voru settar í geymslu sem er opin upp á gátt. Íbúar hússins hafa reynt að fá svör við því hver eigi að bera kostnað vegna þrifa en ekki tekist. Íbúð mannsins hefur enn ekki verið afhent Félagsbústöðum. Þórður Arnar Þórðarson

Rúmum þremur mánuðum eftir skotbardaga lögreglu í Árbæ eru enn ummerki eftir aðgerðirnar í stigaganginum í Hraunbænum þar sem hinn látni bjó. Blóð er á veggjum og í teppi. Veraldlegar eigur mannsins voru settar í geymslu sem er opin upp á gátt. Íbúar hússins hafa reynt að fá svör við því hver eigi að bera kostnað vegna þrifa en ekki tekist. Íbúð mannsins hefur enn ekki verið afhent Félagsbústöðum.

Að morgni annars desember var lögregla kölluð til vegna hávaða að íbúð í Hraunbæ í Árbæ. Þetta átti eftir að vera útkall sem lengi verður í minnum haft. Lögreglan mætti þar skothríð og eftir rúmlega fjögurra klukkutíma umsátur, þar sem lögreglumaður fékk meðal annars högl í hjálminn sinn og sérsveitarmaður skot í skjöldinn sinn, féll skotmaðurinn fyrir hendi sérsveitarinnar.

Lögreglan var búin að skjóta töluverðu magni af gasi inn í íbúðina skömmu áður og var því ekki hægt að gera að sárum skotmannsins inni í íbúðinni. Var hann borinn helsærður niður í anddyrið þar sem sjúkraflutningamenn reyndu að bjarga lífi hans.

Þremur mánuðum síðar er stigagangurinn við Hraunbæ 20 enn litaður af atburðunum. Íbúar eru orðnir langeygir eftir að stigagangurinn verði þrifinn enda blóðsletturnar enn vel sjáanlegar. „Það var allt annað en jólalegt að ganga upp blóðugar tröppurnar á hátíð ljóss og friðar,“ segir einn íbúa en enginn vildi koma í viðtal undir nafni.

Skömmu eftir atburðina var teppið úr anddyri hússins rifið upp og hent í gám fyrir utan en það var alblóðugt. Anddyrið hefur verið flísalagt en blóð er enn á stigagangi. Íbúarnir segja að atvikið sé greypt í huga þeirra og þótt þeir skilji vel að rannsókn geti tekið sinn tíma vilja þeir fá einhver málalok og að ummerkin verði afmáð.

Sjálfir hafa þeir reynt að fá svör í gegnum húsfélagið og sem íbúar en segjast hafa komið að lokuðum dyrum. Einn íbúanna segist hafa reynt að fá svör við því hver eigi að þrífa og hvort íbúar megi yfirhöfuð láta þrífa ganginn, en ekki tekist.

Samskiptin við lögreglu og ríkissaksóknara

Blaðamaður upplifði það sama og íbúar þegar leitað var svara við því hver bæri ábyrgð á því að koma stigaganginum í samt horf eftir aðgerðir lögreglu.

Starfsmaður embættis Ríkissaksóknara vildi fyrst ekki kannast við að málið væri á könnu embættisins. Starfsmaður tæknideildar lögreglunnar staðfesti að deildin hefði afhent ríkissaksóknara öll sín gögn fyrir tveimur vikum.

Eftir ítrekaðar beiðnir fékkst þetta svar frá Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara: „Ríkissaksóknari fer með rannsókn á aðgerðum lögreglu, sbr. 35. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, og er það mál enn til meðferðar við embættið. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu sinnir öðrum verkefnum sem varða þá atburði sem þarna urðu.“

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni telja þeir að íbúðareigandi, sem eru Félagsbústaðir, og leigutaki eigi að bera kostnað af því að skipt verði um teppi í stigaganginum.

Samkvæmt tveimur teppabúðum sem hafa unnið í Hraunbænum við nánast alveg eins hús kostar 550-650 þúsund að skipta um teppi í öllum stigaganginum.

Fjölskyldan fær engin svör

Veraldlegar eigur hins látna voru færðar út úr íbúðinni og settar í geymslu í kjallara hússins sem er of lítil til að rúma allt þannig að eigurnar flæða fram á stigaganginn. Anna Jóna Jónasdóttir, systir mannsins sem féll í aðgerðunum, segir að enginn frá yfirvöldum hafi haft samband við fjölskylduna vegna dótsins í geymslunni.

„Við vitum minna en ekki neitt. Þetta er mjög skrýtið mál. Okkur var sagt að það væri búið að setja dótið hans í gám. Það hefur enginn hringt í okkur eða ekki neitt. Okkur leiðast þessar fréttir um blóðið í stigaganginum því ég fæ þá á tilfinninguna að hann hafi verið dreginn niður stigaganginn.“

Einhver vinna er komin af stað við fjölbýlishúsið; það er búið að skipta um rúður sem sneru út á bílaplan en það var gert í síðustu viku. Einnig er búið að panta nýja hurð og verður hún sett í íbúðina öðrum hvorum megin við helgina. Óvíst er hvenær verður skipt um teppi á stigaganginum.

Félagsbústaðir eiga íbúðina

Félagsbústaðir hf. eiga og reka 2.208 leiguíbúðir í Reykjavík og meðal annars íbúðina í Hraunbæ 20 sem skotmaðurinn leigði. Birgir Ottósson, forstöðumaður Félagsbústaða, segist vilja klára málið sem fyrst því þarna búi annað fólk og algjör óþarfi fyrir það fólk að vera stöðugt áminnt um hvað gerðist.
„Komi eitthvað fyrir í okkar íbúðum þá spáum við ekkert í hver eigi að greiða. Við vöðum bara í málið, hreinsum til, græjum og gerum. Ef við eigum rétt á endurkröfu þá förum við í það seinna. Klárum bara málin. Í þessu máli máttum við koma og hreinsa aðeins til en ekkert eins og maður hefði óskað. Við höfum ekkert mátt koma síðan því það er enn litið á stigaganginn sem vettvang eftir því sem ég best veit.“

Birgir bætir því við að hann vilji einnig koma íbúðinni í leigu á ný því á meðan hún sé tóm hafi Félagsbústaðir eðlilega ekki tekjur af henni. „Við bíðum bara eftir að fá hana afhenta.“

Lögreglan var búin að skjóta töluverðu magni af gasi inn …
Lögreglan var búin að skjóta töluverðu magni af gasi inn í íbúðina skömmu áður og var því ekki hægt að gera að sárum skotmannsins inn í íbúðinni. Var hann borinn helsærður niður í andyrið þar sem sjúkrafluttningamenn reyndu að bjarga lífi hans. Þórður Arnar Þórðarson
Sunnudagsforsíða 09-03
Sunnudagsforsíða 09-03 mbl.is
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert