Farið fram á sex ára fangelsi í skotárásarmáli

Frá héraðsdómi í morgun en þar fer fram aðalmeðferð í …
Frá héraðsdómi í morgun en þar fer fram aðalmeðferð í skotárásarmáli í Bryggjuhverfi mbl.is/Sigurgeir

Ákæruvaldið fer fram á sex ára fangelsi yfir karlmanni sem skaut tvívegis á bifreið í Bryggjuhverfinu í Reykjavík 18. nóvember sl. Þá er farið fram á þriggja ára og tveggja ára fangelsi yfir tveimur mönnum fyrir hlutdeild í skotárásinni.

Mennirnir, Axel Már Smith, Kristján Halldór Jensson og Tómas Pálsson Eyþórsson, eru allir ákærðir fyrir tilraun til manndráps með því að hafa að kvöldi föstudagsins 18. nóvember 2011 farið saman á bifreið á bifreiðastæði við bifreiðasöluna Höfðahöllina að Tangarbryggju 14 í Reykjavík, þar sem þeir höfðu mælt sér mót við mann vegna ágreinings um fjárskuld.

Í ákæru segir að Kristján Halldór hafi skotið úr haglabyssu einu skoti í áttina að bíl mannsins, en ekki hæft. Þegar svo maðurinn ók á brott veittu mennirnir honum eftirför og skaut Kristján Halldór öðru skoti út um glugga bifreiðarinnar. Við skotið brotnaði afturrúða bíls fórnarlambsins og miklar skemmdir urðu á bifreiðinni.

Farið er fram á sex ára fangelsi yfir Kristjáni fyrir þátt sinn, þriggja ára fangelsi yfir Tómasi, sem hafi átt upptökin að málinu en einng upplýst um þátt annarra hjá lögreglu, og tveggja ára fangelsi yfir Axel, en hans þáttur er talin minnstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert