Handtaka þarf vitni og færa fyrir dóm

Sakborningar við aðalmeðferðina.
Sakborningar við aðalmeðferðina. mbl.is/Sigurgeir

Gefin hefur verið út handtökuskipun á hendur vitni sem gefa átti skýrslu við aðalmeðferð í skotárásarmáli sem fram fer í Héraðsdómi Reykjavíkur. Upphaflega átti vitnið að mæta í gær en lét ekki sjá sig, gefin var út skrifleg kvaðning og vitninu afhent hún síðdegis í gær. Engu að síður var það ekki sjáanlegt í morgun.

Aðalmeðferðin í málinu hófst í gær og stendur til að ljúka henni í dag. Um er að ræða þrjá menn, Axel Már Smith, Kristján Halldór Jensson og Tómas Pálsson Eyþórsson, sem allir eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps með því að hafa að kvöldi föstudagsins 18. nóvember 2011 farið saman á bifreið á bifreiðastæði við bifreiðasöluna Höfðahöllina að Tangarbryggju 14 í Reykjavík, þar sem þeir höfðu mælt sér mót við mann vegna ágreinings um fjárskuld.

Sökum þess að vitnið mætti ekki í morgun hefur lögregla verið send af stað til að leita að því og færa fyrir dóminn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert