Miðbærinn opnaður á ný

Lögreglan á Hverfisgötu þar sem torkennilegur kassi var sprengdur í …
Lögreglan á Hverfisgötu þar sem torkennilegur kassi var sprengdur í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Lokun á Hverfisgötu í Reykjavík hefur verið aflétt en í morgun fannst þar torkennilegur hlutur, sem er talinn vera leifar af sprengju.

Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til. Um kl. 10:30 var hluturinn gerður óvirkur og var notaður til þess sérstakur sprengjueyðingarróbóti. Kom í ljós að ekkert sprengiefni var í honum. 

Stórt svæði í miðborginni var girt af á meðan þessu fór fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert