Leit hætt í rústunum

AFP

Her Bangladess er að hætta leit í rústum byggingar sem hrundi í úthverfi höfuðborgarinnar, Dhaka, í síðasta mánuði. Alls létust 1.127 í slysinu en fimm fataverksmiðjur voru til húsa í byggingunni.

Munu hermennirnir yfirgefa svæðið á morgun, að sögn yfirmanns björgunaraðgerða. Ekki er talið að nein lík sé lengur að finna í rústunum en kona fannst á lífi á föstudag, tæpum sautján sólarhringum eftir að byggingin hrundi þann 24. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert