Dragdrottningin Courtney sjúk í Heru Björk

Dragdrottningin Courtney og Hera Björk hittust í Malmö í dag.
Dragdrottningin Courtney og Hera Björk hittust í Malmö í dag.

Hera Björk Þórhallsdóttir er stödd í Malmö í Svíþjóð en á morgun tekur hún þátt í undankeppni Eurovison fyrir Íslandshönd þegar hún flytur lagið Scared of heig­hts. Síðustu dagar hafa verið annasamir hjá Heru Björk og fylgdarliði hennar en í dag fékk hún óvænta heimsókn frá áströlsku dragdrottningunni Courtney.

Dragdrottningin kom í búningsherbergi Heru Bjarkar til þess að fá viðtal við hana fyrir þáttinn sinn en hún varð fræg þegar hún kom fram í 6. seríu af Ru Paul Drag Show. Síðan þá hefur ferill Courtney vaxið og dafnað og á laugardaginn var hún að skemmta í tengslum við Eurovision keppnina. Courtney varð 2. sæti í Dancing with the Stars. En nú er hún með meðal vinsælustu sjónvarpsþátta Ástralíu ásamt því að gefa út sína eigin tónlist.

„Síðan ég sá hana í rauða kjólnum syngja Je Ne Sais Quai hef ég bara elskað þessa konu. Hún táknar allt sem ég elska við að koma fram; gleði, kraft og útgeislun,“ sagði Courtney um Heru Björk þegar þær hittust í búningsherberginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg