Tilnefningar til Eddunnar 2024

Kristbjörg Kjeld og Þröstur Leó Gunnarsson í Á ferð með …
Kristbjörg Kjeld og Þröstur Leó Gunnarsson í Á ferð með mömmu. Ljósmynd/Liisabet Valdoja

Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2024 hafa verið gerðar opinberar en þær voru kynntar á Facebook-síðu Eddunnar milli kl. 11 og 14 í dag.  Kvikmyndin Á ferð með mömmu hlýtur flestar tilnefningar, eða samtals 10 tilnefningar. Næstflestar tilnefningar hlýtur kvikmyndin Villibráð, eða níu tilnefningar. Kuldi, Napóleonsskjölin og Smoke Sauna Sisterhood hljóta sex tilnefningar hver. 

Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) frá árinu 1999. Samkvæmt upplýsingum frá ÍKSA markar hátíðin í ár þáttaskil þar sem kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum hefur verið skipt upp og verða Kvikmyndaverðlaun Eddunnar 2024 afhent 13. apríl næstkomandi í beinni útsendingu á RÚV. Sjónvarpsverðlaunin verða afhent á haustmánuðum.

Á hátíðinni í apríl verða veitt samtals 20 verðlaun til kvikmyndaverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar 2023 til 31. desember 2023.

Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt ásamt tveimur nýjum verðlaunum. Erlend kvikmynd ársins verður verðlaunuð og Uppgötvun ársins en þau eru veitt einstaklingi sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.

Til kvikmyndaverðlauna Eddunnar í ár voru send inn alls 39 verk og 132 innsendingar til fagverðlauna. Heimildamyndir voru 8, heimildastuttmyndir 7, kvikmyndir 7 og stuttmyndir 11. 8 valnefndir, 41 einstaklingur sat í valnefndunum fyrir hina 20 verðlaunaflokka. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.

Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRSINS

  • Konni
  • Sætur (Felt Cute)
  • Þið kannist við...


ERLEND KVIKMYND ÁRSINS

  • Anatomie d'une chute (Fallið er hátt)
  • Kuolleet lehdet (Fallin lauf)
  • Killers of the Flower Moon
  • Oppenheimer
  • Past Lives


HEIMILDAMYND ÁRSINS

  • Heimaleikurinn
  • Skuld
  • Smoke Sauna Sisterhood


HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS

  • Konni
  • Super Soldier
  • Uppskrift: lífið eftir dauðann


KVIKMYND ÁRSINS

  • Á ferð með mömmu
  • Tilverur
  • Villibráð
Plakat myndarinnar Villibráð.
Plakat myndarinnar Villibráð.


STUTTMYND ÁRSINS

  • Dunhagi 11
  • Sorg etur hjarta
  • Sætur (Felt Cute)


BRELLUR ÁRSINS

  • Davíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon & Rob Tasker fyrir Napóleonsskjölin
  • Jean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort
  • Atli Þór Einarsson fyrir Óráð

BÚNINGAR ÁRSINS

  • Helga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmu
  • Helga Rós V. Hannam fyrir Kulda
  • Arndís Ey fyrir Tilverur


GERVI ÁRSINS

  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Á ferð með mömmu
  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Kulda
  • Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Villibráð


HANDRIT ÁRSINS

  • Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu
  • Erlingur Óttar Thoroddsen fyrir Kulda
  • Tyrfingur Tyrfingsson og Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð


HLJÓÐ ÁRSINS

  • Matis Rei fyrir Á ferð með mömmu
  • Björn Viktorsson fyrir Northern Comfort
  • Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood


KLIPPING ÁRSINS

  • Gunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð fyrir Napóleonsskjölin
  • Hendrik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood
  • Ivor Šonje fyrir Tilverur


KVIKMYNDATAKA ÁRSINS

  • Óttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmu
  • Árni Filippusson fyrir Napóleonsskjölin
  • Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood


LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

  • Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Á ferð með mömmu
  • Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Tilverur
  • Gísli Örn Garðarsson fyrir Villibráð


LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

  • Ólafur Darri Ólafsson fyrir Napóleonsskjölin
  • Hilmir Snær Guðnason fyrir Villibráð
  • Björn Hlynur Haraldsson fyrir Villibráð


LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

  • Kristbjörg Kjeld fyrir Á ferð með mömmu
  • Elín Hall fyrir Kulda
  • Vivian Ólafsdóttir fyrir Napóleonsskjölin


LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

  • Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kulda
  • Selma Björnsdóttir fyrir Kulda
  • Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Villibráð


LEIKMYND ÁRSINS

  • Heimir Sverrisson fyrir Napóleonsskjölin
  • Hulda Helgadóttir, Eggert Ketilsson fyrir Northern Comfort
  • Heimir Sverrisson fyrir Villibráð


LEIKSTJÓRI ÁRSINS

  • Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu
  • Anna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood
  • Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð


TÓNLIST ÁRSINS

  • Tönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmu
  • Daníel Bjarnason fyrir Northern Comfort
  • Eðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg