Kardashian óþekkjanleg á nýjum myndum

Raunveruleikastjarnan er algjört kameljón.
Raunveruleikastjarnan er algjört kameljón. AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian kom fylgjendum sínum verulega á óvart nýverið þegar hún birti af sér myndir úr nýjum myndaþætti sem voru teknar í tilefni tíu ára afmælis CR Fashion Book á Instagram. Er þetta í fjórða sinn sem Kardashian situr fyrir hjá tímaritinu. 

Kardashian er nær óþekkjanleg með stutta „buzz“ klippingu, örþunnar augabrúnir og reykjandi sígarettu, en útlitið var þekkt undir heitinu „heroin chic“ í upphafi tíunda áratugsins og einkenndist einnig af fölri húð, dökkum augnfarða og víðum rifnum fatnaði. 

Myndaþátturinn hefur vakið mikla athygli á Instagram en á þremur dögum hafa tæplega þrjár milljónir líkað við færsluna.

Ljósmyndarinn Nadia Lee Cohen á heiðurinn af myndunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg