Andrew Tate hefur verið bannaður af samfélagsmiðlum Meta, bæði Facebook og Instagram.
Bannið hlaut hann fyrir að brjóta stefnu Meta er varðar „hættulegar stofnanir og einstaklinga“, en Tate segir sjálfan sig vera karlrembu (e. sexist). Guardian segir frá.
Tate kom fram í þáttunum „Big Brother“ eftir að hann varð heimsmeistari í bardagagreininni „kick-box“.
Hann var rekinn úr þáttunum eftir að það birtist myndband af honum þar sem hann sást berja konu með belti. Seinna fullyrtu hann og konan í sameiginlegri yfirlýsingu að barsmíðarnar hefðu verið með samþykki konunnar og því ekki um ofbeldi að ræða.
Allar götur síðan hefur Tate viðrað umdeildar skoðanir sínar á samfélagsmiðlum. Árið 2017 var aðgangi hans á Twitter lokað fyrir tilstilli fyrirtækisins vegna ítrekaðrar hatursfullrar orðræðu hans, sem beindist einkum gegn konum og samkynhneigðum.
Lét hann meðal annars þau orð falla að konur ættu að axla ábyrgð á því kynferðisofbeldi sem þær verði fyrir.
Undirskriftalistar, fjölmiðlaumfjallanir og herferðir hafa skotið upp kollinum þar sem markmiðið hefur verið að fá Tate úthýst af samfélagsmiðlum, einkum TikTok þar sem hann á sér í dag um 3,5 milljóna fylgjendahóp. Að stærstum hluta eru fylgjendur hans ungir karlmenn, en á TikTok geta börn átt aðgang frá 13 ára aldri.