Eru ekki byrjuð að skipuleggja brúðkaupið

Ben Affleck og Jennifer Lopez.
Ben Affleck og Jennifer Lopez. AFP

Hollywoodstjörnurnar Ben Affleck og Jennifer Lopez tilkynntu um helgina að þau væru trúlofuð í annað sinn. Þau taka nú eitt skref í einu og eru ekki byrjuð að skipuleggja brúðkaupið. 

Heimildarmaður People segir að Lopez elski græna hringinn sinn og getur hún ekki hætt að horfa á hann. Heimildarmaðurinn segir hins vegar að parið sé ekki enn byrjað að tala um brúðkaup. „Það er mjög sætt að sjá hversu spennt hún er,“ sagði heimildarmaðurinn. „Ben gerir hana ótrúlega hamingjusama.“

Hjónin eru tiltölulega nýtrúlofuð. Þau eru sögð hafa viljað halda trúlofuninni leyndri fyrir sig í nokkra daga áður en þau greindu frá henni. Þau völdu að segja frá henni í sérstöku fréttabréfi Lopez. Stjarnan hafði áður greint frá því í samskonar fréttabréfi að liturinn grænn væri happaliturinn hennar. Liturinn á demantinum var því við hæfi. 

Brúðkaup Lopez og Aff­leck verður fjórða brúðkaup Lopez og annað brúðkaup Afflecks. Þegar þau voru trúlofuð fyrir tæpum tveimur áratugum giftu þau sig aldrei. Þau fundu ástina aftur í fyrra. 

Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez.
Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez. AFP/VALERIE MACON
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg