Ástfangin í fremstu röð

Jennifer Lopez og Ben Affleck saman á körfuboltaleik.
Jennifer Lopez og Ben Affleck saman á körfuboltaleik. AFP

Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez lét vel að hvort öðru þegar þau mættu á leik Boston Celtics og Los Angeles Lakers í Los Angeles í vikunni. Hollywood-stjörnurnar sátu í fremstu röð og reyndu ekki að fela ást sína í fjöldanum á leiknum. 

Lopez sem var í gallaklæðnaði hjúfraði sig upp að leikaranum sem hélt utan um kærustuna sína á leiknum. Þau sáust ekki kyssast en héldust í hendur og voru í faðmlögum. Parið var í mjög góðum sætum og virtist skemmta sér vel á leiknum þegar þau litu af hvort öðru. 

Lopez er í sam­bandi við leik­ar­ann Ben Aff­leck en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þau eru saman. Lopez og Aff­leck voru trú­lofuð frá 2002 til 2004. Lopez og hafna­bol­takapp­inn Alex Rodrigu­ez slitu trú­lof­un sinni fyrr á þessu ári og stuttu seinna var leik- og söngkonan byrjuð með gamla kærastanum. 

Jennifer Lopez og Ben Affleck skemmtu sér vel á körfuboltaleiknum.
Jennifer Lopez og Ben Affleck skemmtu sér vel á körfuboltaleiknum. AFP
Lopez og Affleck horfðu ekki bara á hvort annað heldur …
Lopez og Affleck horfðu ekki bara á hvort annað heldur fylgdust líka með leiknum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg