Var að kafna með kalkúninn á höfðinu

Það reyndist Courtney Cox erfitt að endurgera atriðið úr Friends.
Það reyndist Courtney Cox erfitt að endurgera atriðið úr Friends. Samsett mynd

Friends-stjarnan Courtney Cox gladdi aðdáendur sína í lok nóvember þegar hún tróð kalkún á höfuðið á sér. Cox endurgerði þar með ógleymanlegt atriði úr Friends. Að troða alvörukalkún á höfuðið er þó ekki auðvelt eins og Cox útskýrði í sérstöku myndbandi á instagram á dögunum. 

Leikkonan netta sýndi hvernig hún fór að því að troða kalkúninum á höfuðið á sér. Þar má sjá að hún reyndi bæði að nota handklæði og plastpoka til þess að gera veruna inni í kalkúninum bærilegri. Þrátt fyrir að vera með gott aðstoðarfólk reyndist afar erfitt að koma kalkúninum á. Í nýja myndbandinu má heyra hana segja hversu erfitt þetta sé og að hún geti ekki andað. 

Upphaflega atriðið er í fimmtu þáttaröð af sjónvarpsþáttunum vinsælu. Höfundur þáttanna greindi frá því síðar að Cox hefði ekki verið með alvöru kalkún á höfðinu í tökum á þættinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg