Fór ólétt að sækja fíkniefni fyrir Perry

Matthew Perry glímdi lengi vel við fíknivanda.
Matthew Perry glímdi lengi vel við fíknivanda. mbl.is/Cover Media

Friends-stjarnan Matthew Perry átti lengi vel í fíknivanda. Kona sem fékk borgað fyrir að ná í efni fyrir hann steig fram um helgina. Í viðtali við The Sun segist Kayti Edwards meðal annars hafa náð í fíkniefni fyrir Perry þegar hún var komin fimm mánuði á leið. 

Edwards segist hafa sótt efni fyrir Perry til þess að vernda hann. Hún hafi viljað koma í veg fyrir að hann færi út og það kæmist upp um hann. Í kringum 2011 segist hún hafa sótt hvað sem er fyrir Perry.

„Ég var komin fimm mánuði á leið og sótti efni fyrir hann,“ sagði Edwards. Hún segir Perry hafa sagt við sig að enginn grunaði ólétta konu um vörslu á fíkniefnum. 

„Við opnuðum pokann, stundum voru pillur, kókaín, stundum heróín og krakk, þetta var bara eins og hlaðborð, þú vissir aldrei hvað þú fékkst.“

Sjálf segist Edwards aldrei hafa tekið fíkniefni með leikaranum og segist varla smakka áfengi.

„Ég horfi til baka og hugsa: hvers konar vinur var ég? En ég vildi hjálpa honum,“ sagði Edwards sem fékk vel borgað fyrir hjálpsemina. Stundum fékk hún þrjú til fjögur þúsund bandaríkjadali á dag. „Þetta var frekar skrítið og samband okkar varð eitrað. Ég gat ekki sagt nei.“

Edwards segist vera ánægð fyrir hönd Perrys að vera edrú. Hún vonar að hann haldi áfram á beinu brautinni en hinn 51 árs gamli leikari er nýtrúlofaður kærustu sinni til tveggja ára, hinni 29 ára gömlu Molly Hurwitz.

Matthew Perry er þekktur fyrir hlutverk Chandler Bing í Friends.
Matthew Perry er þekktur fyrir hlutverk Chandler Bing í Friends.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg