Frumsýna nýjan Yaris

Yaris hefur notið vinsælda undanfarin misseri.
Yaris hefur notið vinsælda undanfarin misseri. Ljósmynd/Aðsend

Nýr Toyota Yaris Hybrid verðu frumsýndur næstkomandi laugardag, 6. apríl, hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota.

Yaris hefur síðasta aldarfjórðunginn notið almennra vinsælda enda þykir hann vera af hagkvæmri stærð og býður upp á fjölbreytta notkun.

Toyota Yaris Hybrid fæst nú með 130 hestafla vél, og fimmtu kynslóð af Hybrid-kerfi sem skilar betri orkunýtingu og minni útblæstri ásamt nýju margmiðlunarkerfi með 10,5 tommu skjá.

Opið er hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi á laugardag frá kl. 12–16.

mbl.is