Verkþekking, vöruþróun og sjálfbærni

„Framleiðsla á veiðarfærum byggist á góðri samvinnu við skipstjórnarmenn sem …
„Framleiðsla á veiðarfærum byggist á góðri samvinnu við skipstjórnarmenn sem vita hvað virkar,“ segir Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar. mbl.is/Sigurður Bogi

Ábyrg umhverfisstefna og rétt auðlindanýting eru mikilvægir þættir í þróun og framleiðslu Hampiðjunnar á veiðarfærum. Fyrirtækið er 90 ára um þessar mundir en ber aldurinn vel. Þróunin er hröð og forskot Íslands skýrt, í eina landinu í heiminum þar sem haldið er úti formlegri menntun í veiðarfæragerð.

„Starfsemi okkar og framleiðsla byggist á verkþekkingu en ekki síður góðri samvinnu við skipstjórnarmenn, sem hafa sínar skoðanir og vita hvað virkar,“ segir Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar í Morgunblaðinu í dag.

„Trollin sem við framleiðum eru í flestum tilvikum sérsniðin fyrir hvert og eitt skip og þá þarf að hafa í huga búnað þess, togkraft, á hvaða mið er sótt og fleira slíkt. Margt þarf að fara saman og því er samtalið mikilvægt.“

Piotr Poskrobko, til vinstri, og Bergþór Þorsteinsson taka til hendi …
Piotr Poskrobko, til vinstri, og Bergþór Þorsteinsson taka til hendi í veiðarfæragerð Hampiðjunnar við Sundahöfn í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Stofndagur Hampiðjunnar var 5. apríl 1934. Guðmundur S. Guðmundsson, vélvirki og verkstjóri í Héðni, hafði þá kallað saman 12 manna hóp úr sjávarútvegi til þess að stofna fyrirtæki sem framleiddi garn og net úr náttúrulegum hamptrefjum.

Á Íslandi þótti skorta efni til veiðarfæragerðar og því kalli var svarað. Svo fór líka að ári eftir stofnun Hampiðjunnar voru framleiðsluvörur fyrirtækisins – þá einkanlega línur og net – orðnar allsráðandi á íslenskum skipum.

Ítarlega umfjöllun um Hampiðjuna má lesa í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.5.24 333,99 kr/kg
Þorskur, slægður 3.5.24 570,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.5.24 124,76 kr/kg
Ýsa, slægð 3.5.24 153,38 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.5.24 101,25 kr/kg
Ufsi, slægður 3.5.24 131,97 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 3.5.24 127,10 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.5.24 Skúli ST 75 Grásleppunet
Grásleppa 2.690 kg
Þorskur 867 kg
Ufsi 185 kg
Skarkoli 133 kg
Steinbítur 42 kg
Samtals 3.917 kg
3.5.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 5.413 kg
Þorskur 1.277 kg
Skarkoli 175 kg
Ufsi 65 kg
Steinbítur 35 kg
Samtals 6.965 kg
3.5.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 282 kg
Grásleppa 207 kg
Steinbítur 33 kg
Skarkoli 29 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 563 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.5.24 333,99 kr/kg
Þorskur, slægður 3.5.24 570,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.5.24 124,76 kr/kg
Ýsa, slægð 3.5.24 153,38 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.5.24 101,25 kr/kg
Ufsi, slægður 3.5.24 131,97 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 3.5.24 127,10 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.5.24 Skúli ST 75 Grásleppunet
Grásleppa 2.690 kg
Þorskur 867 kg
Ufsi 185 kg
Skarkoli 133 kg
Steinbítur 42 kg
Samtals 3.917 kg
3.5.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 5.413 kg
Þorskur 1.277 kg
Skarkoli 175 kg
Ufsi 65 kg
Steinbítur 35 kg
Samtals 6.965 kg
3.5.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 282 kg
Grásleppa 207 kg
Steinbítur 33 kg
Skarkoli 29 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 563 kg

Skoða allar landanir »

Loka