„Allt útheimtir þetta umtalsverða fjármuni“

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir það krefja töluverða fjármuni ef …
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir það krefja töluverða fjármuni ef auka á viðbragðsgetu stofnunarinnar. mbl.is/Árni Sæberg

„Allt útheimtir þetta umtalsverða fjármuni eins og það er stjórnvalda að leggja mat á þá viðbragðsgetu sem nauðsynleg er hér við land,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, í blaði 200 mílna um sjávarútveg sem fylgir Morgunblaðinu í dag.

Tilefni orða forstjórans er niðurstaða höfunda skýrslu um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum. Þar segir að geta Landhelgisgæslu Íslands til að hafa eftirlit með umferð um efnahagslögsöguna og landhelgina sé ekki tryggð og að rekstur eftirlitsflugvélar stofnunarinnar sé ekki tryggður allt árið. Auk þess er talin mikil þörf á auknum viðbúnaði og betri mönnun áhafna.

Í viðtali í 200 mílum í dag segir Georg björgunargetuna hafa verið eflda undanfarin ár með fjölgun þyrluáhafna, nýrri þyrlum og nýju varðskipi. Leitar- og björgunarsvæðið sem LHG ber ábyrgð á er hins vegar stórt, um 1,9 milljónir ferkílómetra. „Á svo stóru svæði er viðbúið að björgunargeta sé að einhverju leyti takmörkuð.“

Ítarlegt viðtal við Georg er sem fyrr segir í blaði 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu í dag.

Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur oft sinnt verkefnum erlendis, en fjarvera hennar …
Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur oft sinnt verkefnum erlendis, en fjarvera hennar er sögð draga verulega úr björgunar- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.24 366,91 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.24 494,07 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.24 563,86 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.24 324,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.24 97,30 kr/kg
Ufsi, slægður 31.5.24 257,80 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.24 341,38 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.6.24 Sigurey ST 22 Grásleppunet
Grásleppa 3.104 kg
Þorskur 517 kg
Samtals 3.621 kg
1.6.24 Kári SH 78 Grásleppunet
Grásleppa 648 kg
Samtals 648 kg
1.6.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 521 kg
Samtals 521 kg
1.6.24 María SH 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.984 kg
Samtals 1.984 kg
1.6.24 Hrói SH 40 Grásleppunet
Grásleppa 302 kg
Samtals 302 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.24 366,91 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.24 494,07 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.24 563,86 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.24 324,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.24 97,30 kr/kg
Ufsi, slægður 31.5.24 257,80 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.24 341,38 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.6.24 Sigurey ST 22 Grásleppunet
Grásleppa 3.104 kg
Þorskur 517 kg
Samtals 3.621 kg
1.6.24 Kári SH 78 Grásleppunet
Grásleppa 648 kg
Samtals 648 kg
1.6.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 521 kg
Samtals 521 kg
1.6.24 María SH 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.984 kg
Samtals 1.984 kg
1.6.24 Hrói SH 40 Grásleppunet
Grásleppa 302 kg
Samtals 302 kg

Skoða allar landanir »