Launin, hamingjan og allt hitt

Maður kastar mæðinni eftir að hafa úðað skordýraeitri á heitum …
Maður kastar mæðinni eftir að hafa úðað skordýraeitri á heitum ágústdegi í Hong Kong. Umræðan um launa- og vinnumarkaðsmál kynjanna verður m.a. að taka það með í reikninginn að karlmenn sækja oft í að vinna skítverkin AFP

Það er vissara að byrja þennan pistil með stuttri yfirlýsingu: Það að benda á hvernig karlmenn eiga undir högg að sækja felur ekki í sér tilraun til að smætta þær áskoranir sem konur glíma við.

Er líka vissara að taka þetta fram fremst í textanum því umræðan um jafnréttismál og vandamál kynjanna tekur stundum á sig þá mynd að annað kynið hafi það gott á kostnað hins. Það er einkum marxískur femínismi sem sér jafnréttismálin í þessu ljósi: sem átök tveggja hópa þar sem annar kúgar og hinn er kúgaður. Það fellur illa að marxískum femínisma að reyna að líta á jafnréttismálin sem samstarfsverkefni frekar en glímu, og frá sjónarhóli marxísks femínisma gæti það litið út eins og árás á kvenþjóðina að benda á að hlutskipti karla sé ekkert endilega svo frábært.

Til að reyna að koma í veg fyrir misskilning er líka rétt að ég undirstriki að ég lít á femínisma annars vegar og marxískan femínisma hins vegar sem skyld en mjög ólík fyrirbæri. Ég er þess...