„Skjótið bara, sama er mér!“

Danir flykktust út á götur Kaupmannahafnar 5. maí 1945 og …
Danir flykktust út á götur Kaupmannahafnar 5. maí 1945 og fögnuðu frelsinu undan hernámi Þjóðverja.

Frelsisdagurinn 5. maí 1945 er ein mesta gleðistund í sögu Danmerkur á öldinni sem leið. Þá urðu Danir frjálsir að nýju eftir fimm ára þrúgandi hersetu Þjóðverja. Nokkur skuggi hvílir þó einnig yfir minningu þessa dags og þeirra sem í hönd fóru vegna þess að hefndarþyrstir félagar í dönsku andspyrnuhreyfinguni, frelsisliðar sem svo nefndu sig, notuðu tækifærið þegar Þjóðverjar höfðu gefist upp til að elta uppi landa sína og fleiri menn sem þeir töldu, með réttu eða röngu, hafa átt í samstarfi við nasista.

Voru allmargir teknir af lífi án dóms og laga. Í hópi fórnarlambanna var 17 ára gamall íslenskur skólapiltur, Karl Jóhann Hallsson, sem saklaus var skotinn til bana. Hafði hann verið handtekinn í misgripum fyrir bróður sinn. Einna þekktastur var þó án efa Guðmundur Jónsson Kamban, tæplega 57 ára gamall rithöfundur, leikskáld og leikstjóri sem búsettur var í Danmörku.

Aldrei hefur verið upplýst um það opinberlega hver það var sem...