1. verðlaun Sólarlag við Vestrahorn eftir Jón Rúnar Hilmarsson sigraði í ljósmyndakeppni mbl.is og Canon.
1. verðlaun Sólarlag við Vestrahorn eftir Jón Rúnar Hilmarsson sigraði í ljósmyndakeppni mbl.is og Canon.

Ljósmyndakeppni mbl.is og Canon var haldin í sumar og lauk 31. ágúst sl. Ýmis verðlaun voru veitt fyrir ljósmyndir, en helstu verðlaun hlutu Jón Rúnar Hilmarsson, sem hreppti Canon EOS M6-myndavél, Ester Gísladóttir, sem hlaut gjafabréf að verðmæti 60.000 kr. með Wow Air og Finnur Andrésson, sem fékk Canon PowerShot G9 X Mark II-myndavél. Einnig fékk Guðlaug Bára Helgadóttir verðlaun sem veitt voru 16. júní, Hulda Guðmundsdóttir fékk verðlaun fyrir bestu þjóðhátíðarmyndina og Helgi Halldórsson fékk verðlaun sem veitt voru 26. júlí.

Myndirnar má allar sjá á vefsíðu keppninnar, www.mbl.is/folk/ljosmyndakeppni/.