„Þetta er bara það hvernig maður kýs að líta út“

Vinsældir fegrunaraðgerða hafa sjaldan eða aldrei verið meiri. Í nútímasamfélagi eru miklar útlitskröfur gerðar til fólks og æskuljóminn virðist eftirsóknarverður hjá mörgum. Viktor Heiðdal Andersen, hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, ræðir um kosti og galla fegrunaraðgerða í Dagmálum.