Meiri fordómar gegn fegrunaraðgerðum en kynhneigð

„Í samfélaginu almennt þá finnst mér ég verða fyrir meiri fordómum gagnvart fegrunaraðgerðunum heldur en að vera samkynhneigður. Það er mín upplifun alla vega,“ segir Viktor Heiðdal Andersen, hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, í Dagmálum.