Gunni hefur breytt íbúðinni fjórum sinnum á 20 árum

Gunni Hilmars hönnuður og tónlistarmaður hefur búið í sömu íbúðinni í 20 ár. Hann og eiginkona hans, Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, hafa þó breytt íbúðinni nokkrum sinnum og segir Gunni að þau hafi gengið í gegnum allskonar tímabil. Hjónin eiga þrjú börn og hafa verið saman í 30 ár.