Hún var sjúk í íbúðina og hann þráði útsýnið

Tónlistarmennirnir og leikararnir, Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, féllu fyrir hvort öðru og búa nú saman í útsýnisíbúð í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann starfar í Arion banka ásamt því að vinna í tónlistinni og Þórdís Björk er í Reykjavíkurdætrum ásamt því að vera að leika hjá Leikfélagi Akureyrir og svo les hún líka inn hljóðbækur.