Grímuklæddur maður í lyftunni

Fólk sem átti leið um Turninn í Höfðatúni fyrr í mánuðinum brá illilega í brún þegar grímuklæddur maður birtist í lyftu hússins og lét dólgslega. Enginn hlaut þó meint af og er búið að bera kennsl á manninn sem er á þrítugsaldri og hefur ekki komið við sögu hjá lögreglu áður.