Sjáandinn á Vesturbrú

Sjáandinn á Vesturbrú

Í fjórða þætti af fimm segir frá skelfilegum örlögum hjóna á Friðriksbergi árið 1948 og hvernig Guðný Eyjólfsdóttir Vestfjörð tengist mest umræddu morðum í sögu Danmerkur. Sagt er frá miðilsfundi á vettvangi glæpanna og ferð sjáandans á Vesturbrú til Íslands með heimildarkvikmynd í farteskinu. Í þættinum heyrast brot úr tveimur dönskum hlaðvarpsþáttaröðum, annars vegar þáttaröðinni Edderkoppen og min morfar eftir Julie Bundgaard sem er hluti af hlaðvarpinu Krimiland, hins vegar Dobbeltmordet eftir Thomas Bjerregaard Nielsen sem Danmarks Radio framleiðir. Tónlistin í þættinum er úr smiðju Patriciu Brennan, The Caretaker, Kai Normann Andersen, Börge Roger Henrichsen Kvintet, , The Swe-Danes, Halfdan A og Jeppe Kaas. Einnig heyrist í söngkonunni Karen Jönsson og hljómsveit Les Brown.

Morðin á Peter Bangs VejHlustað

01. okt 2022