Sjáandinn á Vesturbrú

Sjáandinn á Vesturbrú

Í öðrum þætti af fimm um Guðnýju Eyjólfsdóttur Vestfjörð segir frá fyrstu för systranna Guðnýjar og Jósefínu til Kaupmannahafnar og heimför þeirra með ungbarn sem deyr í hafi. Einnig er rætt um íslenskar konur í Kaupmannahöfn á fyrstu áratugum 20. aldar. Þá er fjallað líf Guðnýjar sem var þyrnum stráð framan af, hún fæddi þriðja óskilgetna barnið, lenti í fangelsi og var heimilislaus. Á 4. áratugnum fer hagur hennar að vænkast og hún byrjar að nota dulræna hæfileika sína fyrir alvöru. Í þættinum er rætt við Ragnhildi Vigfúsdóttur MA í sagnfræði, Þórarin Óskar Þórarinsson og Guðnýju Emmu Nielsen. Rikke Houd tók viðtalið við Guðnýju á heimili hennar í Borgundarhólmi. Einnig heyrast upptökur sem varðveittar eru á gagnagrunninum Ísmús þar sem Hallfreður Örn Eiríksson þjóðfræðingur ræðir við Jósefínu Eyjólfsdóttur spákonu. Ísmús er í umsjá Tónlistarsafns Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns. Í þættinum heyrist tónlist úr smiðju The Caretaker, Kai Normann Andersen, o.fl.

Fyrstu ár Guðnýjar í KaupmannahöfnHlustað

17. sep 2022