Grænkerið

Grænkerið

Útskýring á mannamáli um hvað fólk þarf í alvöru að spá í á vegan mataræði. Hvað getum við fengið beint úr næringunni og hvaða bætiefni ætti að taka aukalega. Það er mikið af fordómum og misvillandi upplýsingum um veganisma í samfélaginu svo mér datt í hug að  fá einhvern í viðtal sem væri bæði með fræðilegan bakgrunn úr náminu en einnig að hafa lifað grænkeralífsstíl í fjölda ára.Guðrún Ósk hefur lokið B.Sc námi í næringarfræði og M.Sc í matvælafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur í gegnum GÓ Heilsu boðið upp á næringarnámskeið þar sem markmiðið er að bæta lífsgæðin þín með því að hjálpa þér að neyta í auknum mæli matvæla sem vinna saman að heilnæmu mataræði. -Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. Intro: Promoe - These walls don’t lie

Vegan næring með Guðrúnu Ósk (GÓ Heilsa)Hlustað

09. jan 2024