Lestin

Lestin

Í tilefni að setningu Barnamenningarhátíðar tekur Krakkaveldi við stjórnartaumunum í Lestinni í dag. Væb, Halldóra Geirharðs, Eurovision-sniðganga og pistill um fangelsismál eru meðal þess sem krakkarnir bjóða upp á. Borghildur, Sóley og Margrét tóku viðtal við bræðurna Matta og Hálfdán en saman eru þeir í hljómsveitinni VÆB. Hvað er uppáhalds bragðarefurinn þeirra? Hvernig gengur þeim að vinna saman? Og hver er apinn? Fangelsi eru stofnanir sem ætlað er að refsa og endurhæfa einstaklinga sem hafa framið glæpi. En hver er raunveruleiki málsins? Jakob Friðrik, pistlahöfundur, veltir fyrir sér málefnum fanga í þætti dagsins. Halldóra Geirharðsdóttir er ein ástsælasta leikkona landsins. Yrsu langaði mjög mikið að tala við hana um leiklist og fá hjá henni góð ráð. Nína leiðir umræður um Eurovision og sniðgöngu. Á Ísland að taka þátt í keppninni? Á að meina Ísrael þátttöku? Á maður að fylgjast með? Nína, Yrsa, Jakob og Margrét ræða þessi mál í þaula.

Krakkaveldi x LestinHlustað

23. apr 2024