Þjónustuskrá

Útfararþjónusta

Harpa Útfararstofa

Kirkjulundi 19

210 Garðabær

Sími 8420204

harpa@harpautfor.is http://www.harpautfor.is

Við fráfall ástvinar

Hjá flestum okkar er fráfall ástvina það erfiðasta sem við upplifum. Sorgin er ekki ein tilfinning heldur tilfinningaferli og þrátt fyrir það hversu ólík við erum þá raðast tilfinningar í sorgarferlinu ótrúlega líkt hjá okkur öllum.

Fyrstu tímana eða dagana eftir andlát náins ættingja eða vinar eru flestir í áfalli og eiga bágt með að trúa hvað hafi í raun gerst. Óraunveruleikatilfinning er það sem flestir tala um að upplifa fyrst, ásamt ýmsum öðrum tilfinningum. Sorgarviðbrögð eru mismunandi og fólk ber sorg sína á margvíslegan hátt. Því skiptir mjög miklu að þeir sem umgangast aðstandendur sýni þeim ýtrustu nærgætni og virðingu. Spurningarnar eru margar og þá er gott að geta leitað til fagaðila.

 

HARPA útfararstofa hjálpar aðstandendum við að skipuleggja og hafa umsjón með öllu sem útförinni fylgir, með natni og umhyggju að leiðarljósi. Stofan sér einnig um borgaralegar útfarir sem eru án þjónustu prests. Allir eiga rétt á legstað í kirkjugörðum óháð trúfélögum og utan trúfélaga.