Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Nýi Landspítalinn, NLSH, hefur birt niðurstöðu í hönnunarútboði vegna nýs húsnæðis fyrir legudeild Sjúkrahússins á Akureyri, SAk. Hanna á nýbyggingu fyrir legudeildir í skurð- og lyflækningadeild og dag-, göngu- og legudeild fyrir geðdeild við núverandi húsnæði SAk
Sviss vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í þriðja sinn á laugardagskvöldið, en söngvarinn Nemo flutti þar lagið „The Code“. Hlaut lagið samtals 591 stig í efsta sæti, en þar af komu 365 stig frá dómnefndum þátttökuríkjanna
Forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson, tók ásamt Elizu Reid forsetafrú á móti nýjum íslenskum ríkisborgurum á Bessastöðum í gær og tilkynnti embætti forseta eftirfarandi í fréttatilkynningu: „Það að fá nýjan ríkisborgararétt er stór…
Afgangur af rekstri A-hluta Hafnarfjarðarbæjar á sl. ári var 251 milljón kr. sem er nánast sama tala og 2022. Afgangur fyrir A- og B-hluta nam 808 millj. kr. og afkoma fyrir fjármagnsliði var 3.649 millj
Ingibjörg Smith söngkona lést 9. maí sl. á heimili sínu í Annapolis í Maryland í Bandaríkjunum, 95 ára að aldri. Ingibjörg fæddist 23. mars 1929. Foreldrar hennar voru Stefán Árnason og Stefanía S. Jóhannsdóttir
Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður þriggja kvenna sem á að vísa úr landi á næstu dögum, hefur farið fram á að framkvæmd brottvísunar verði frestað í tilfelli einnar konunnar af heilbrigðisástæðum. Lagði lögmaðurinn fram læknisvottorð um heilsufar…
Sýningin Brot úr ævi jarðar er í aðalhlutverki í nýrri miðstöð menningar og vísinda sem var opnuð í Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs um helgina. Þetta er með öðru endurnýjuð barnadeild bókasafnsins – þar sem farnar eru nýjar…
Fernt, þrír karlar og ein kona, er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurlandi á alvarlegu ofbeldisbroti sem átti sér stað í Reykholti í Biskupstungum í lok apríl síðastliðins. Til rannsóknar er meint frelsissvipting, líkamsárás og fjárkúgun
Samsýningin Samspil stendur nú yfir í Listasafninu á Akureyri. Sýningin er afrakstur vinnu ungmenna af erlendum uppruna á listavinnustofu þar sem þau unnu eigin verk innblásin af völdum verkum í eigu safnsins
Víkingur úr Reykjavík hafði betur gegn FH, 2:0, í toppslag 6. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu í Víkinni í gærkvöldi. Ríkjandi Íslandsmeistararnir eru nú með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar
Breytingar verða gerðar á farfuglaheimilinu í Laugardal fyrir sumarið og gistirýmum þar fjölgað. Reksturinn gekk vel í fyrra. Sótt hefur verið um leyfi skipulagsyfirvalda til að breyta innra skipulagi húsnæðisins þannig að gistirýmum fjölgi úr 180 í 213
„Eins og málið blasir við mér virðist Reykjavíkurborg ekki hafa nýtt sér að næstum helmingur lóðarleigusamninga var útrunninn eða við það að renna út. Að mínu mati hefði verið eðlilegra að breyta landnotkun samhliða og endurúthluta…
Forsetaframbjóðendur gerðu víðreist um helgina og héldu fundi meðal kjósenda. Þau Halla Tómasdóttir, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir voru til dæmis á Norðurlandi; tóku þar fólk tali, heyrðu viðhorf þess og kynntu sjónarmið sín
Ljósmyndari Morgunblaðsins hafði það á orði í kjölfar ferðar sinnar um reykvískan miðbæ að á þessari mynd af vegfarendum í miðbænum gamalgróna mætti greina vissan stórborgarbrag borgarinnar við sundin og vissulega má það til sanns vegar færa ef vel er gáð
Frambjóðendur til embættis forseta Íslands eru á ferð og flugi þessa dagana við að kynna sig og helstu áherslumál. Tæpar þrjár vikur eru til kosninga. Síðdegis á morgun, þriðjudag, verður framboðsfundur í hliðarsal Bókasafns Seltjarnarness við Eiðistorg
Snjómoksturstæki Vegagerðarinnar hafa haft í nógu að snúast í vetur og vor við snjómokstur og hálkuvarnir. Um miðjan apríl var akstur þeirra á landsvísu yfir veturinn kominn í tæplega tvær milljónir kílómetra
Mikil hreyfing er enn á fylgi við forsetaframbjóðendur samkvæmt nýjustu vikulegri skoðanakönnun Prósents fyrir Morgunblaðið í aðdraganda forsetakjörs. Fylgi allra fjögurra efstu frambjóðenda minnkaði milli vikna, en á hinn bóginn reisti Halla…
Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að víkja Sergei Shoígú úr embætti varnarmálaráðherra, en hann hafði gegnt embættinu frá árinu 2012. Skipaði Pútín Andrei Belousov í stað Shoígús, en Belousov er hagfræðingur að mennt og hefur enga hernaðarlega reynslu
„Á þetta reynir annað slagið þegar skilvísir borgarar koma með verðmæti, stundum er það í formi reiðufjár og stundum einhvers annars,“ segir Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, í samtali við Morgunblaðið
Dragdrottningin Bianca Del Rio, úr RuPaul’s Drag Race, kemur fram í Eldborg Hörpu laugardaginn 12. október. Almenn sala hefst á morgun, þriðjudag, kl. 10, en póstlistaforsala Senu Live hefst í dag kl
Ganga þarf langar leiðir um hjarnbreiður þegar farið er að Dettifossi. Vegurinn sem liggur austanvert við Jökulsá á Fjöllum er greiðfær, en gönguleiðin frá bílastæðunum að fossinum er enn undir snjó
„Núna er allt við það sama og svo sem ekkert að frétta, þetta er allt við það sama,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið, inntur eftir stöðu mála á eldsumbrotasvæðinu á Reykjanesskaga
Kári Freyr Kristinsson karifreyr@mbl.is „Það eru miklu fleiri spurningar sem vakna en þau svör sem maður getur fengið í öllu þessu máli,“ segir Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Miðflokksins, spurð um afstöðu sína til lóðarleigusamninga Reykjavíkurborgar og olíufélaganna.
Eftir að hafa verið án veitingastaðar í tæp tvö ár eru breytingar í vændum á Þórshöfn. Eigendur Gistiheimilisins Lyngholts á Þórshöfn hafa gert samning við Langanesbyggð um leigu á félagsheimilinu Þórsveri til þess að reka þar veitingastað
Þegar aðeins eru tæpar þrjár vikur í forsetakjör blasir við að kjósendur eru engan veginn búnir að gera upp hug sinn til forsetaframbjóðenda og fylgið enn á mikilli ferð. Niðurstöður úr nýjustu skoðanakönnun Prósents bera það með sér, en ekki síður þegar horft er til fylgisþróunar síðustu viku
Fréttaskýring Kári Freyr Kristinsson karifreyr@mbl.is