Forsíða | Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins

Erlent

Svona lítur friðaráætlun Trumps út
Hvíta húsið birtií gær friðaráætlun Trumps Bandaríkjaforseta varðandi stríðið á Gasasvæðinu, en hún er í 20 liðum.
meira

Heróp Hegseths í Virginíu
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lýsti bandaríska hernum í dag sem of feitum, of uppteknum af „woke“-hugmyndafræði vinstrimanna og í þörf fyrir gagngerar breytingar með áherslu á að vera harðir stríðsmenn.
meira

„Þær bara hverfa“
Þegar kemur að stórviðburðum í heimssögunni eru konur alltaf þátttakendur og spila oft stórt hlutverk í miðju atburðanna. Þegar þessir atburðir eru hins vegar yfirstaðnir þá einhvern veginn er alltaf að mestu horft fram hjá hlutverki þeirra þegar sagan er sögð. „Þær bara hverfa.“
meira

Stofnandinn lætur af störfum sem forstjóri
Annar stofnenda Spotify, Daniel Ek, mun láta af störfum sem forstjóri fyrirtækisins um áramót. Hann tekur við sem stjórnarformaður félagsins.
meira

Öflugur jarðskjálfti á Filippseyjum
Jarðskjálfti af stærðinni 6,9 reið yfir úti fyrir miðjum Filippseyjum í dag samkvæmt upplýsingum frá Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna.
meira

Trump og Hegseth leggja hernum línurnar
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandaríski herinn sé að „endurvekja baráttuandann“ þegar hann ávarpaði fund mörg hundruð háttsettra herforingja.
meira

Danir herða öryggisráðstafanir
Danir hafa hert öryggisráðstafanir við orkuinnviði landsins vegna hættu á skemmdarverkum og árásum.
meira

Móðgun við Bandaríkin hljóti Trump ekki Nóbelsverðlaun
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að það yrði móðgun við Bandaríkin hljóti hann ekki friðarverðlaun Nóbels fyrir það að binda enda á fjölmörg stríð, eins og hann orðaði það.
meira

Á fimmta hundrað látist úr hungri og vannæringu
453 manns, þar af 150 börn, hafa látist úr hungri og vannæringu á Gasa að sögn heilbrigðisráðuneytisins þar.
meira

Danir auka hættustigið og herinn kallar út varalið
Danski herinn hefur kallað út nokkur hundruð hermenn úr varaliði sínu og stjórnvöld hafa fært hættustig landsins í næsthæstu stöðu.
meira

Netanjahú: Herinn áfram á meirihluta Gasa
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að Ísraelsher verði áfram á meirihluta Gasasvæðisins.
meira

YouTube greiðir Trump 2,7 milljarða
YouTube hefur samþykkt að greiða 22 milljónir dollara, eða um 2,7 milljarða króna, í dómsátt eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti höfðaði mál gegn fyrirtækinu fyrir að hafa lokað reikningi hans í kjölfar árásarinnar á bandaríska þingið 2021.
meira

Þrír látnir eftir að skólabygging hrundi
Að minnsta kosti þrír eru látnir og tugir eru slasaðir eftir að íslömsk skólabygging hrundi á stærstu eyju Indónesíu, Java, að sögn lögreglunnar í landinu.
meira

Endalok Play rata í heimsfréttirnar
Ákvörðun Play um að hætta starfsemi hefur ratað í heimsfréttirnar. Erlendir miðlar greina frá gjaldþroti flugfélagsins.
meira

Evrópskir leiðtogar ánægðir með áætlun Trumps
Leiðtogar Evrópuríkja segjast styðja friðaráætlun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta fyrir Gasasvæðið. Þeir hvetja hryðjuverkasamtökin Hamas til að samþykkja áætlunina.
meira

Fann lottómiða í jakkavasanum og vann 2,3 milljarða
Þýskur maður datt aldeilis í lukkupottinn þegar hann fann lottómiða í jakkavasanum sínum sex mánuðum eftir að hafa keypt hann. Reyndist vera vinningur á honum upp á um 16,3 milljónir evra, eða sem nemur um 2,3 milljörðum íslenskra króna.
meira

Netanjahú samþykkir friðaráætlun Trumps
Hvorki Hamas-samtökin né heimastjórn Palestínumanna á Vesturbakkanum munu fá hlutverk á Gasa í náinni framtíð að óbreyttu að sögn Netanjahús.
meira

Draga sig úr samningi um varnir gegn pyndingum
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur undirritað lög um að Rússland dragi sig úr evrópusamningi um varnir gegn pyndingum.
meira

Slítur ríkisstjórn eftir mannskæð mótmæli
Forseti Madagaskar, Andry Rajoelina, hefur slitið ríkisstjórn landsins í kjölfar mannskæðra mótmæla þar í landi.
meira

Netanjahú baðst afsökunar
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur beðist afsökunar á loftárásum Ísraelshers á Doha, höfuðborg Katar. Þá hefur hann jafnframt lofað því að slíkar árásir verði ekki endurteknar.
meira

fleiri