Sýningin Heima er best, með vefnaðarverkum eftir tuttugu listamenn úr Félagi vefnaðarkennara og vefara, stendur nú yfir í Gallerí Fold og var opnuð sem hluti af HönnunarMars
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin á Patreksfirði yfir hvítasunnuhelgina, 17.-20. maí. Auk sýninga á heimildamyndum verður boðið upp á skrúðgöngu, plokkfiskveislu og limbókeppni, svo svo nokkrir viðburðir séu nefndir
Kanadíska Nóbelsskáldið Alice Munro er látin, 92 ára. Hún hefur verið talin ein af meisturum smásöguformsins en smásögur hennar fjalla margar hverjar um hversdag venjulegs fólks. Munro var margverðlaunuð en naut sérstaklega hylli á seinni hluta rithöfundarferils síns
Hljómsveit bassaleikarans Bjarna Sveinbjörnssonar kemur fram á næstu vortónleikum Jazzklúbbsins Múlans í kvöld, miðvikudaginn 15. maí, kl. 20 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum mun Bjarni flytja eigin tónsmíðar ásamt hljómsveit sinni
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir hefur verið valin í hlutverk Auðar í söngleiknum Litla hryllingsbúðin sem Leikfélag Akureyrar setur upp í haust. Um 60 leikkonur mættu í áheyrnarprufur fyrir hlutverkið, sem fram fóru bæði í Reykjavík og á Akureyri
Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær í 77. sinn. Aðaldómnefnd hátíðarinnar er að þessu sinni sem endranær alþjóðleg en formaður dómnefndarinnar er bandaríski leikstjórinn Greta Gerwig, sem vakti mikla athygli með mynd sinni Barbie síðasta sumar
Nýtt listasafn, Kunstsilo, var opnað í Kristiansand í Suður-Noregi á laugardaginn var að viðstöddu fjölmenni. Kunstsilo hefur vakið mikla athygli en safnið er byggt inn í og utan um gríðarháa kornturna sem reistir voru fyrir miðja síðustu öld og voru hannaðir árið 1935 af virtum arkitektum
Flestir þekkja Sir David Attenborough sem sögumann náttúrunnar. Attenborough varð 98 ára í síðustu viku og hefur aldeilis lifað tímana tvenna. Þrátt fyrir háan aldur er hann enn að gera það sem honum finnst skemmtilegast, að vinna, og segja má að hann hafi verið rödd náttúrunnar í 70 ár