Bæjarstjórinn alsæll með söluna

Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, og Ómar Tryggvason framkvæmdastjóri Innviða fjárfestinga …
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, og Ómar Tryggvason framkvæmdastjóri Innviða fjárfestinga II slhf. Ljósmynd/Seltjarnarnesbær

„Ég er alsæll með að þetta sé í höfn,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. 

Seltjarnarnesbær hefur gengið frá sölu á fasteigninni Safnatröð 1 þar sem hjúkrunarheimilið Seltjörn er til húsa. Kaupandi er félagið Safnatröð slhf. sem er í eigu innviðasjóðsins Innviðir fjárfestingar II slhf. en sá sjóður er í eigu lífeyrissjóða. Innviðasjóðurinn er í umsjón Summu rekstrarfélags hf. Kaupverðið er 1.865 milljónir króna.

Safnatröð 1 var auglýst til sölu á síðasta ári og sýndu margir kaupunum áhuga að því bæjarstjórinn segir í samtali við mbl.is. Hann segir að sala fasteignarinnar hafi engin áhrif á rekstur hjúkrunarheimilisins sem rekið sé með myndarbrag af Vigdísarholti ehf.

Hjúkrunarheimilið Seltjörn að Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi.
Hjúkrunarheimilið Seltjörn að Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/Marinó Flóvent

Vonandi framhald

Kaupsamningurinn gerir ráð fyrir því að heilbrigðisráðuneytið leigi áfram hluta hjúkrunarheimilisins sem er stærsti hluti eignarinnar. Seltjarnarnesbær mun hins vegar leigja það húsnæði sem ráðuneytið hefur ekki verið með á leigu fram til þessa og hýsir dagdvöl fyrir aldraða.

Fram kemur í tilkynningu frá Þór að fjölmörg góð tilboð hafi borist en að bærinn hafi tekið þá ákvörðun að ganga til samninga við Safnatröð slhf. Við undirritun afsalsins lýsti Þór yfir sérstakri ánægju sinni með að tekist hafi að klára samninga við þennan öfluga kaupanda og telur að um mikið framfaraskref sé að ræða.

„Mér finnst jákvætt að lífeyrissjóðir landsins séu að fjárfesta í innviðum sveitarfélaga. Vonandi verður framhald á því,“ segir bæjarstjórinn við mbl.is.

Bærinn standi í stórræðum

Í tilkynningu bæjarstjórans kemur einnig fram að sala fasteignarinnar, þar sem rekið er blómlegt hjúkrunarheimili, sé bæjarfélaginu afar mikilvæg. Með þeim fjármunum sem fáist fyrir fasteignina gefist bænum kostur á frekari uppbyggingu innviða í bæjarfélaginu.

Í því sambandi nefnir Þór að bærinn standi í stórræðum við kostnaðarsama endurbyggingu á húsnæði grunnskólans og að fram undan sé bygging leikskólahúsnæðis svo eitthvað sé nefnt.

„Það er mjög ánægjulegt að ljúka þessum kaupum og við hlökkum til samstarfs við Seltjarnarnesbæ og ríkið um verkefnið,“ er haft eftir Ómari Tryggvasyni framkvæmdastjóra Innviða fjárfestinga II slhf. í tilkynningu.

„Veruleg og vaxandi þörf er á hjúkrunarheimilum og fjármögnun þeirra. Slík fjármögnun til langs tíma hentar lífeyrissjóðum mjög vel. Við vonumst til að geta tekið þátt í frekari slíkum samstarfsverkefnum í framtíðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka