„Viltu giftast mér?“ - Eldheitur kjúklingaréttur

Spurning um að prófa elda þennan kjúklingarétt fyrir þann sem …
Spurning um að prófa elda þennan kjúklingarétt fyrir þann sem þú elskar og sjá viðbrögðin. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Helena Gunnarsdóttir hjá Eldhúsperlum er búin að vera stúdera þennan eldheita kjúklingarétt síðustu vikur og ákvað loksins að prófa. „Ég er búin að sjá þennan rétt í ýmsum útfærslum á samfélagsmiðlum síðustu vikur og varð að prófa. Rétturinn sem upphaflega heitir „Marry Me Chicken“ á sem sagt að vera svo góður að hver svo sem þú eldar hann fyrir vilji líklega giftast þér. Ég held ég sé bara sammála en rétturinn er bæði virkilega bragðgóður og einfaldur,“ segir Helena og hlær. Upplagt er að bera þennan eldheita kjúklingarétt með tagliatelle pasta, kartöflumús, brauði og/eða fersku salati. Réttinn gerði Helena fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Hér má sjá hinn vinsæla rétt framreiddan á TikTok

„Viltu giftast mér?“ Kjúklingaréttur

Fyrir 4

  • 3 stk. stórar kjúklingabringur
  • 3 stk. skallottulaukar
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 3 dl kjúklingasoð (vatn og einn kjúklingateningur.)
  • 4 dl rjómi
  • 2 dl sólþurrkaðir tómatar í strimlum
  • 1 dl rifinn bragðmikill ostur, t.d. Goðdala Feykir
  • Spínat, tvær góðar handfyllir
  • Fersk basilíka, eftir smekk
  • 1 stk. sítróna, rifinn börkur og safi úr 1/2 sítrónu
  • Smjör, ólífuolía, salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt á þykktina þannig að úr verði tvær þunnar sneiðar.
  2. Þerrið vel og kryddið vel með salti og pipar.
  3. Hitið pönnu með smjöri og ólífuolíu og steikið bringurnar á báðum hliðum þar til fallega gylltar.
  4. Setjið til hliðar.
  5. Skerið laukinn og hvítlaukinn smátt og mýkið á pönnunni, gott að bæta smá smjöri við.
  6. Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna og látið malla og sjóða aðeins niður.
  7. Bætið þá rjómanum út á ásamt sólþurrkuðu tómötunum, spínatinu, rifna ostinum og leggið kjúklingabringurnar ofan á.
  8. Látið malla í 10-15 mínútur á meðalhita eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og sósan hefur þykknað aðeins.
  9. Smakkið til með salti og pipar.
  10. Takið af hitanum.
  11. Rífið smá sítrónubörk yfir, kreistið safa úr hálfri sítrónu yfir og blandið aðeins saman.
  12. Toppið með ferskri basilíku.
  13. Berið fram með því sem hugurinn girnist, til dæmis tagliatelle pasta, kartöflumús, brauði eða fersku salati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert