Stjörnuspá sun. 28. apr. 2024

Stjörnuspá
sun. 28. apr. 2024

21. mars - 19. apríl

Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.

20. apríl - 20. maí

Óvænt daður kann að gleðja og jafnframt rugla þig í ríminu í dag. Spennandi atvinnutækifæri blasa við þér.

21. maí - 20. júní

Þú ræður ekkert við ýtnina í dag og ert staðráðin í því að fá aðra til þess að samsinna þér. Mundu að þolinmæðin þrautir vinnur allar.

21. júní - 22. júlí

Það er tímaeyðsla að reyna að breyta öðrum. Gleymdu því sem ætlast er til af þér, og hlustaðu á rödd hæfileika þíns.

23. júlí - 22. ágúst

Gerðir þínar eru sönnun þess hvað er þér mikilvægt. Samskipti skapa ekki bara frið, heldur felast í þeim bestu augnablik lífsins.

23. ágúst - 22. september

Það má ýmislegt gera til að gleðja sjálfan sig og aðra án þess að kosta miklu til. Fylgdu innsæi þínu. Leyfðu þér að njóta þess.

Vog
23. september - 22. október

Alvaran hefur ráðið ríkjum hjá þér og nú er orðið tímabært að þú veitir svolítilli gleði inn í líf þitt. Nú þegar þú þarft sjálfur stuðning máttu ekki loka þig af.

23. október - 21. nóvember

Farðu þér hægt í þeim fjárfestingarplönum, sem þú ert að hugsa um. Skoðaðu hlutina en farðu ákaflega varlega í að velja þér eitthvað eitt.

22. nóvember - 21. desember

Stundum er munur á því sem fólk sér í þér og það sem þú ert í raun og veru. Einhversstaðar mættirðu gefa meira af þér og annarsstaðar minna.

22. desember - 19. janúar

Annað fólk hefur mikil áhrif á þig í dag, sem getur bæði verið gott og slæmt. Samband þitt við samstarfsfólk og viðskiptavini verður með besta móti.

20. janúar - 18. febrúar

Þú ert svo upptekinn af tæknilegum atriðum þess sem þú ert að bauka að þú verður að passa þig að missa ekki sjónir af stóru myndinni. Minntu sjálfan þig á afrek þín.

19. febrúar - 20. mars

Það skiptir öllu máli að hafa þannig áhrif á fólk að það taki þig trúanlegan og fáist til þess að fela þér ábyrgð. Vertu lítillátur en leyfðu þér að njóta árangursins.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og