Illa hefur gengið að veita regnvatni úr borginni Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum (SAF) eftir gríðarlega úrkomu í landinu síðustu daga.
Karim Elgendy, aðstoðarforstjóri hjá verkfræðistofunni Buro Happold, segir að frárennsliskerfi í borginni ráði illa við miklar rigningar. Víða hafi ekki verið gert ráð fyrir slíku kerfi í skipulagi borgarinnar.
Þess í stað er notast við tankbíla við að dæla vatni í tanka bifreiðanna, sem er svo ekið í burtu og losað fyrir utan borgina.
Úrkoman sem féll á þriðjudag í SAF er sú mesta í skráðri sögu landsins. Um 259,5 mm féllu þar sem veðurfarið er alla jafna sólríkt og þurrt. Fjórir létu lífið í flóðinu.
Margir vegir í kringum Dúbaí eru enn ófærir eftir flóðin.
Þetta hefur gert það að verkum að margt fólk hefur ekki komist til vinnu sinnar og ekki hefur tekist að fylla á vörur í mörgum matvöruverslunum.
Hefur það meðal annars orðið til þess að verulegur skortur er á starfsfólk á alþjóðaflugvellinum í Dúbaí. Flugi hefur verið aflýst og seinkað og er áætlað að það verði áfram raunin um helgina.