Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG er jafn í fimmta sæti eftir fyrsta dag í U.S. Amateur Championship-mótinu sem er haldið í San Francisco í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Gunnlaugur fór fyrsta hringinn á tveimur höggum undir pari en hann fékk þrjá fugla og einn skolla
Knattspyrnukonan Ingibjörg Sigurðardóttir, varafyrirliði íslenska landsliðsins, er gengin til liðs við þýska liðið Freiburg frá Bröndby í Danmörku. Freiburg leikur í efstu deild Þýskalands. Ingibjörg er 26 ára gömul og kom til Bröndby frá þýska…
Hinn 17 ára gamli Aljus Anzic sló heimsmet er hann skoraði 23 mörk fyrir Slóveníu í einum leik á HM U19-ára drengja í handknattleik í Egyptalandi á mánudag. Mörkin skoraði hann úr 25 skotum í 37:37-jafntefli gegn Noregi
Steinþór Már Auðunsson var besti leikmaðurinn í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Steinþór Már átti stórleik í marki KA þegar liðið vann mikilvægan 1:0-sigur á ÍBV á Akureyri, sem þýðir að KA er tveimur stigum fyrir…
FH og Breiðablik mætast í bikarúrslitum kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli á laugardag og þau hituðu upp fyrir stóru stundina með markaveislum í 13. umferð Bestu deildarinnar í gærkvöldi. Breiðablik vann sinn níunda leik í röð í öllum keppnum er liðið sigraði Víking, 4:2, í Fossvogi
Michael Akoto, þýskur knattspyrnumaður, hefur skrifað undir samning við KR sem gildir út tímabilið 2027. Akoto er 27 ára miðvörður sem kemur á frjálsri sölu en var síðast á mála hjá AGF í Danmörku, þar sem hann lék 19 leiki á tveimur árum
Knattspyrnumaðurinn Andri Fannar Baldursson gerði þriggja ára samning við tyrkneska félagið Kasimpasa á dögunum. Hann var keyptur þangað frá Bologna á Ítalíu en Andri kom fyrst til Bologna árið 2019 frá uppeldisfélaginu Breiðabliki
Íslenska drengjalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum á HM 2025 í Egyptalandi með mögnuðum sigri á Spáni, 32:31, í milliriðli 2 í gær. Spánn var yfir, 30:31, þegar um hálf mínúta var eftir en ótrúlegur…
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hefur valið 13 leikmenn til að taka þátt í leikjum Íslands gegn Svíþjóð og Portúgal í Braga. Liðið leikur við Svíþjóð á morgun og við heimamenn í Portúgal á föstudag