Körfuknattleiksmaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril, en miðherjinn er 35 ára gamall. Hann lék með Vestra í 2. deildinni á síðustu leiktíð. Sigurður Gunnar var sjö sinnum í úrvalsliði í efstu deild á…
Þeir Sævar Atli Magnússon og Andri Lucas Guðjohnsen eru báðir í liði 29. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Sævar Atli skoraði eitt mark og lagði upp annað og Andri Lucas var einnig á skotskónum er Lyngby hafði betur gegn OB, 2:1, á föstudagskvöld
Handknattleiksþjálfarinn Einar Jónsson er hættur þjálfun kvennaliðs Fram í handbolta en hann mun halda áfram að þjálfa karlaliðið. Handbolti.is greindi frá í gær. Einar stýrði kvennaliðinu í eitt ár er hann tók við starfinu af Stefáni Arnarsyni sem skipti yfir í Hauka
Aston Villa og Liverpool skildu jöfn, 3:3, í stórskemmtilegum leik í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á Villa Park í gærkvöldi. Leikurinn byrjaði með látum því Emiliano Martínez í marki Villa skoraði slysalegt sjálfsmark strax á 2
ÍR gerði sér lítið fyrir og vann ÍBV á heimavelli í 1. deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi, 2:0, í 2. umferðinni. ÍR vann 2. deildina en ÍBV féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð. Berta Sóley Sigtryggsdóttir kom ÍR yfir strax í upphafi seinni…
Patrick Pedersen, danski framherjinn hjá Val, var besti leikmaður 6. umferðar Bestu deildar karla að mati Morgunblaðsins. Patrick lék mjög vel og skoraði tvö mörk þegar Valsmenn sigruðu KA 3:1 á Hlíðarenda á laugardaginn en hann fékk tvö M hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína
Körfuknattleiksþjálfarinn Óskar Þór Þorsteinsson er hættur þjálfun karlaliðs Þórs frá Akureyri. Óskar tók við Þór fyrir tveimur árum, þá aðeins 25 ára. Undir hans stjórn endaði Þór í fimmta sæti í 1
Keflavík tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta með sigri á Stjörnunni, 81:76, í oddaleik í undanúrslitum í Keflavík. Deildar- og bikarmeistararnir unnu einvígið 3:2 og mæta Njarðvíkingum í úrslitum í Suðurnesjaslag um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn
Sóley Margrét Jónsdóttir tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í kraftlyftingum með búnaði í +84 kg flokki á sunnudaginn en mótið fór fram í Lúxemborg. Þetta er annað árið í röð sem Sóley Margrét verður Evrópumeistari í þessum þyngdarflokki
Bandaríski varnarmaðurinn Kyle McLagan hefur slegið í gegn með Frömurum í Bestu deild karla í fótbolta. Endurkoma hans í raðir þeirra bláklæddu eftir tvö ár í Víkingi hefur haft ansi góð áhrif á varnarleik Fram sem áður lak inn mörkum í stórum stíl en er nú einn sá besti í deildinni