Craig Pedersen verður líklega áfram landsliðsþjálfari karla í körfubolta en samningur hans við KKÍ rann út eftir EM í haust. Kanadamaðurinn hefur fengið nýtt samningstilboð frá KKÍ og viðræður ganga vel
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson stýrir Vestra í lokaumferðum Bestu deildarinnar í fótbolta en hann tekur við af Davíð Smára Lamude sem lét af störfum á mánudaginn. Jón Þór stýrði síðast uppeldisfélagi sínu ÍA frá 2022 þar til honum var sagt upp störfum fyrr á tímabilinu
Englandsmeistarar Liverpool töpuðu sínum öðrum leik á tímabilinu í gær þegar liðið heimsótti Galatasaray í 2. umferð Meistaradeildarinnar í Istanbúl. Leiknum lauk með 1:0-sigri Galatasaray þar sem Victor Osimhen skoraði sigurmark leiksins strax á 18
Brittany Dinkins átti stórleik fyrir Njarðvík þegar liðið vann öruggan sigur á Stjörnunni, 81:64, í upphafsleik úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í Garðabæ í gærkvöldi. Bikarmeistarar Njarðvíkur unnu Íslandsmeistara Hauka í Meistarakeppni KKÍ á…
Knattspyrnudeild FH og Heimir Guðjónsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum í lok yfirstandandi tímabils þegar samningur Heimis rennur út. Hann tók við þjálfun FH á ný eftir erfitt tímabil árið 2022 og fékk það verkefni að koma á…
Sierra Marie Lelli tryggði Þrótti úr Reykjavík afar dýrmætan sigur gegn Breiðabliki, 3:2, þegar liðin mættust í 20. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Þróttarvelli í Laugardal í gær. Sierra skoraði sigurmark leiksins á 77
Hermann Þór Ragnarsson sóknarmaður ÍBV var besti leikmaður 24. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Hermann átti frábæran leik þegar ÍBV vann stórsigur gegn Vestra á Ísafirði, 5:0, en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum
Tindastóll hefur leik í ENBL-deildinni í körfubolta í dag þegar liðið heimsækir Slovan Bratislava frá Slóvakíu í 1. umferð keppninnar. Tindastóll leikur í 2. riðli keppninnar en alls eru 27 lið skráð til leiks í deildina í ár sem leika í þremur riðlum
Barcelona og Veszprém mætast í úrslitaleik HM félagsliða karla í handbolta í Egyptalandi á morgun. Viktor Gísli Hallgrímsson er markvörður Barcelona en liðið hafði betur gegn Al Ahly frá Egyptalandi, 26:21, í undanúrslitum keppninnar
Belgíska knattspyrnufélagið Gent hefur sagt Arnari Þór Viðarssyni upp störfum en hann hafði verið íþróttastjóri félagsins í rúmt ár. Belgíski miðillinn Nieuwsblad greindi frá í gær. Þar kom fram að Arnar Þór hefði verið látinn taka pokann sinn vegna skipulagsbreytinga hjá Gent