Rifu niður tjaldbúðirnar og handtóku nemendur

Að minnsta kosti 50 nemendur og starfsmenn UCLA voru handteknir.
Að minnsta kosti 50 nemendur og starfsmenn UCLA voru handteknir. AFP

Nokkur hundruð lögreglumanna fjarlægðu í dag tjöld úr mótmælabúðum við UCLA-háskólann í Kaliforníu. Átök brutust út á milli mótmælenda og lögreglumanna, sem rifu niður hindranir og handtóku nemendur.

Efnt hef­ur verið til mót­mæla á að minnsta kosti 30 há­skóla­svæðum víðs veg­ar um Bandaríkin en mót­mæli þeirra bein­ast gegn stríðsrekstri Ísraels á Gasaströndinni og til stuðnings Palestínu­mönn­um.

Krefjast nemendur m.a. að háskólarnir slíti samstarfi sínu við ísraelska háskóla.

Mótmælin voru leyst upp eftir gríðarstóra lögregluaðgerð.
Mótmælin voru leyst upp eftir gríðarstóra lögregluaðgerð. AFP

Beittu ljóssprengjum

Lögreglumenn í Los Angeles rifu niður trégrindverk sem umkringdi mótmælasvæðið við UCLA og drógu tjöld í burtu. Nemendur í UCLA, með hvíta hjálma á höfði, kræktu höndum saman til að mynda vegg sem sneri að lögreglunni.

Lögreglan beitti m.a. leiftursprengjum til að dreifa úr mannmergðinni sem hafði safnast saman fyrir utan tjaldbúðirnar og hrópaði: „Sleppið þeim!“. Á meðan sveimuðu þyrlur yfir svæðinu.

Lögreglumenn lokuðu stigum sem liggja að svæðinu en nemendur klæddir gulum jökkum, sem hafa gegnt sjúkraliðastörfum í mótmælabúðunum, segja við AFP að þeim hafi flestum verið meinaður aðgangur að svæðinu.

Nemendur í UCLA, með hvíta hjálma á höfði, kræktu höndum …
Nemendur í UCLA, með hvíta hjálma á höfði, kræktu höndum saman til að mynda vegg sem sneri að lögreglunni. AFP

„Neyðarástand á háskólasvæðinu“

„Þetta eru friðsamleg mótmæli, það eru engir andmótmælendur hérna í kvöld, svo að kalla til lögregluna á þá er fyrirlitlegt. Þessi borg ætti að styðja þá,“ sagði Jack Bedrosian, íbúi í los Angeles, við AFP en hann mætti til að sýna mótmælendum.

Lögregluviðvera á svæðinu í mótmælabúðunum hefur aukist í kjölfar gagnrýni sem lögregluyfirvöld þurftu að sæta eftir að bregðast seint við þegar átök brutust út á milli mótmælenda og andmótmælenda á þriðjudag.

UCLA sagði í yfirlýsingu að kennslustundir féllu niður í dag og á morgun, föstudag, vegna „neyðarástands á háskólasvæðinu“. Nemendum var ráðlagt að halda sig fjarri mótmælabúðunum.

Að minnsta kosti 50 nemendur og starfsmenn UCLA voru handteknir, að sögn skólans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert