Fegurðardrottningin og flugfreyjan Elísa Gróa Steinþórsdóttir og unnusti hennar Elís Guðmundsson byggingarfræðingur eignuðust sitt fyrsta barn í síðustu viku.
„Draumaprinsinn okkar fæddist 08.04.24 kl 23:02,“ skrifaði parið þegar það greindi frá komu frumburðarins. „Elísa stóð sig eins og hetja við að koma litla kút í heiminn og heilsast þeim vel.“
Fjölskylduvefur mbl.is óskar parinu til hamingju með soninn.