Eldgosinu lokið en getum búist við öðru

Gosið lifði í um 54 daga.
Gosið lifði í um 54 daga. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Eldgosinu við Sundhnúkagíga er lokið en kvika streymir enn inn í kvikuhólf undir Svartsengi. Samhliða því hefur skjálftavirkni sótt í sig veðrið, sem er vísbending um aukinn þrýsting í kvikuganginum. Það má því búast við öðru gosi.

Veðurstofa lýsti yfir goslokum um kl. 8 í morgun en grunsemdir um goslok hafa verðið uppi frá því í gær, eftir að dregið hafði úr gosóróa á svæðinu. Þá sást heldur engin virkni í sjálfur gosopinu.

„Það sáust engin merki í gær um kvikuhreyfingar eða kviku í gosopinu,“ segir Minney Sigurðardóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Minney bætir við að Veðurstofan bíði alltaf sólarhring að hverju sinni áður en hún lýsir yfir goslokum. Gosið stóð því yfir í tæplega 54 daga.

Gosstöðin í gærkvöldi.
Gosstöðin í gærkvöldi. Ljósmynd/Almannavarnir

Landris heldur áfram

Það má samt enn búast við öðru gosi, þar sem kviku­söfn­un held­ur áfram und­ir Svartsengi.

Lík­an­reikn­ing­ar Veðurstofunnar gera ráð fyr­ir því að um 13 millj­ón rúm­metr­ar af kviku hafi safnast undir Svartsengi frá því að gosið hófst, sem er talið vera í kringum þolmörk kvikuhólfsins.

Þá hefur skjálftavirkni aukist á svæðinu og Minney segir að allt að 60 skjálftar hafi riðið yfir á Reykjanesskaga síðasta sólarhring, sem er aukning miðað við síðustu daga.

„Þessi skjálftavirkni er að sýna fram á aukinn þrýsting vegna innflæðis kviku í kvikuhólfið,“ segir Minney og bætir við að skjálftum hafi fjölgað hægt og bítandi undanfarna viku. 

Líkanreikningur á kvikusöfnun í Svartsengi.
Líkanreikningur á kvikusöfnun í Svartsengi. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert