Tólf ára drengur illa fótbrotinn

Ljósmynd/Colourbox

Tólf ára drengur fótbrotnaði illa í árekstri tveggja mótorkrosshjóla í mótorkrossbrautinni við Tungumela í Mosfellsbæ í gær.

Lögreglu barst tilkynning um slysið á sjötta tímanum í gær.

Að sögn Hjördísar Sigurbjörnsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, voru báðir ökumennirnir fluttir á bráðamóttöku og reyndist annar þeirra illa fótbrotinn. Hann er tólf ára gamall. Hinn ökumaðurinn er fullorðinn einstaklingur.

Hjördís segir að tildrög slyssins og rannsókn á öryggisútbúnaði séu til rannsóknar hjá lögreglu en svo virðist vera að hjólin hafi skollið saman á brautinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert