Óðinn markahæstur í bikarúrslitum

Óðinn Þór Ríkharðsson er bikarmeistari í Sviss
Óðinn Þór Ríkharðsson er bikarmeistari í Sviss Ljósmynd/Kadetten

Óðinn Þór Ríkharðsson fór fyrir sínu liði þegar Kadetten Schaffhausen varð svissneskur bikarmeistari í handbolta í dag.

Óðinn skoraði 9 mörk, þar af þrjú úr vítum, þegar Kadetten sigraði RTV Basel, 38:33, í bikarúrslitum í Sviss í dag. Bikarúrslitin eru á athyglisverðum tíma í Sviss en Óðinn og félagar eru í miðri undanúrslitarimmu um meistaratitilinn þar í landi. 

Óðinn Þór er á sínum stað í íslenska landsliðshópnum sem mætir Eistum í umspili um sæti á HM 2025 8. og 11. maí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert