Uppskrift fyrir helgarbaksturinn er fastur liður á matarvefnum og að þessu sinni kemur uppskriftin úr smiðju Stefáns Péturs Bachmanns Bjarnasonar. Stefán er bakari á Hygge Coffee & Micro Bakery sem staðsett er á Seljavegi í gamla Vesturbænum. Stefán er einnig liðsmaður í landsliði íslenskara bakara sem hefur verið að gera garðinn frægan líkt og áður hefur komið fram hér á matarvef mbl.is.
Stefán Pétur Bachmann Bjarnason býður upp á helgarbaksturinn að þessu sinni en hann er bakari í Hygge Coffee & Micro Bakery sem staðsett er vestur í bæ í hjarta borgarinnar.
mbl.is/Árni Sæberg
Að þessu sinni ætlar Stefán að bjóða okkur upp á ómótstæðilega „Blondie“ eða ljósku með karamellu og „vanillu chantilly“ sem bráðnar í munni. Þessa þarf aðeins að nostra við og er upplagt að undirbúa sig vel fyrir baksturinn.
„Blondie“ með karamellu og „vanillu chantilly“
Blondie/Ljóskan
- 282 g smjör
- 340 g hvítt súkkulaði
- 500 g sykur
- 240 g egg
- 80 g eggjarauður
- 10 g vanillu extract
- 440 g hveiti
- 10 g salt
- 5 g lyftiduft
Aðferð:
- Byrjið á því að bræða smjörið og blandið saman við hvíta súkkulaðið.
- Þeytið síðan eggin, eggjarauðurnar og sykurinn með písk í hrærivél.
- Blandið síðan smjörinu og hvíta súkkulaðinu saman við.
- Bætið síðan öllum þurrefnunum vel saman við.
- Setjið í viðeigandi form, setjið inn í ofn og bakið á 180°C hita í 20 mínútur.
Karamella
- 400 g sykur
- 240 g rjómi
- 180 g smjör
- 12 g sjávarsalt
Aðferð:
- Setjið sykur í pott á miðlungs hita og hitið þangað til sykurinn er byrjaður að taka gylltan lit.
- Hrærið rjómanum síðan vel saman við.
- Bætið smjörinu og saltinu saman við og hrærið þangað til að smjörið er bráðnað saman við blönduna.
- Gott er að kæla karamelluna alveg niður áður en hún er notuð.
„Vanillu chantilly“
- 1000 ml rjómi
- 100 g sykur
- 1 stk. vanillustöng
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið saman í pott og hitið að suðu eða þar til sykurinn er alveg leystur upp.
- Kælið yfir nótt í ísskáp fyrir notkun.
Samsetning:
- Skerið ljóskuna í jafnar sneiðar, um það bil 6 cm x 6 cm, smyrjið karamellu ofan á og sprautið síðan „Vanillu Chantilly“ fallega ofan á.