Í hjarta borgarinnar, þar sem veitingastaðurinn Punk var áður til húsa, hefur nú glænýr veitingastaður rutt sér til rúms. Staðurinn, sem ber heitið Amber & Astra, er afrakstur sameiginlegs áhugamáls hjónanna Viggós Vigfússonar og Erlu Sylvíu Guðjónsdóttur.
Erla, sem starfar einnig sem mannauðsstjóri hjá Andes & Prógramm, deilir þessari ástríðu með Viggó, sem ber hitann og þungann af öllu er snýr að opnun og rekstri staðarins. Þau eru einnig eigendur að Blackbox Pizza, Hygge - Coffee & Micro Bakery og veitingastaðarins OTO ásamt Sigurði Laufdal.
Í tilefni af því var haldið opnunarpartí þar sem vinum og velunnurum var boðið í mat og drykk. Boðið var upp á smárétti í anda þess sem er á matseðlinum. Yfir 200 manns mættu í opnunarpartíið og gleðin var allsráðandi. Gestir gæddu sér á kræsingum og nutu góðs félagsskapar innan um matgæðinga og gleðigjafa í fallegu og stílhreinu umhverfi.
Aðspurður segir Viggó að veitingastaðurinn verði með frönsku ívafi og muni vera opinn öll kvöld í vikunnar og bjóða upp á bröns um helgar. Einnig verði opið í hádeginu fimmtudögum og föstudögum.
„Okkur langaði að opna stað sem er með þeirri matargerð sem er mjög vinsæl hjá matarunnendum og þá er mest verið að horfa til Frakklands þar sem eru miklar hefðir og klassísk matreiðsla sem okkur finnst sjálfum mjög skemmtileg og góð þótt við ætlum ekki að festa okkur of mikið í Frakklandi. Það verða líka klassískir réttir annars staðar frá.“
Yfirkokkur staðarins er Daninn Carl Kristian Frederiksen en hann hefur verið búsettur hér um hríð en hefur þar á undan verið í New York. Hann er reynslumikill matreiðslumaður sem á að baki flottan feril, hefur meðal annars starfað á Michelin-stjörnuveitingastaðnum Dill, Estela og Acme í New York, Aamann's og Nimb í Kaupmannahöfn svo fátt sé nefnt.
Myndaveislan talar sínu máli og lýsir stemningunni vel.