Valentínusardagur er á morgun sem dagur ástarinnar og þá er um að gera að fagna ástinni og gera vel við ástina og sig. Hann er haldinn er hátíðlegur á messudegi heilags Valentínusar 14. febrúar ár hvert. Þetta er ekki íslenskur siður líkt og bóndadagur og konudagur en engu að síður eru margir landsmenn farnir að halda upp á þennan dag og fjöldi veitingastaða og annarra fyrirtækja á Íslandi eru farin að bjóða tilboð í tilefni dagsins. Dagurinn á uppruna sinn að rekja í Evrópu á 14. öld. Meðal þess sem er hefðbundið að gera þennan dag er að senda sínum heittelskaða/sinni heittelskuðu gjafir á borð við blóm og konfekt og láta Valentínusarkort fylgja með. Þessar hefðir eiga uppruna sinn í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum.
Ef þig langar að dekra við ástina þína á morgun gegnum magann þá er margt í boði sem gleður augu og munn. Matur er mannsins megin eins og máltækið segir og hvað er huggulegra en að snæða saman rómantíska máltíð, njóta kræsinga eða borða fallegan eftirrétt við kertaljós?
Hér er að finna 8 góðar hugmyndir til gleðja ástina þína gegnum munn og maga:
Þetta er sá morgunverður sem er upplagt að gleðja ástina með upp í rúm ásamt glasi af ljúffengu kampavíni, hvort sem það er áfengt eða óáfengt. Það er þessi hátíðleiki og rómantík sem svífur yfir með þessum morgunverðarrétti og bræðir öll hjörtu sem elska egg og reyktan lax.
Sjá uppskriftin hér fyrir neðan:
Spældu hjartalaga egg fyrir ástina þína
Það þarf ekki að vera flókið að bjóða ástinni þinni upp á huggulegan morgunverð. Þú getur einfaldlega spælt egg í hjartalöguðu formi. Eina sem þú þarft að gera er að spæla eggið í hjartalöguðu formi, bera það fram á fallegum disk og krydda til með chiliflögum eða skreyta með ferskri steinselju. Síðan er lag að færa ástinni þinni hjartaeggið á bakka ásamt ferskum appelsínusafa og nýbökuðu brauði ef vill upp í rúm og bjóða góðan dag. Það er ást og gleður matarhjartað.
Sjá uppskriftina hér fyrir neðan:
Frá 14.- 25. febrúar verður sérstakur matseðill í boði á Fiskmarkaðnum tileinkaður ástinni. Þau sjá einnig um blómvöndinn en hann kemur frá vinum þeirra hjá Blómstru. Þú færð gjafabréf við komu og getur sent blómvönd beint á ástina þína þegar þér hentar - heimsending innifalin.
Færðu ástinni þinni gómsætan eftirrétt
Gulli Arnar bakari er þekktur fyrir sína gómsætu og fallegu eftirrétti og í tilefni Valentínusardags er hann búinn að töfra fram eftirrétt fyrir ástina. Bakaríið hans heitir einfaldlega Gulli Arnar, Flatahrauni í Hafnarfirði.
Sælkerabúðin býður upp á tilboð á dýrindis þriggja rétta rómantískri máltíð, konfekti og blómum. Í tilefni Valentínusardagsins er búið stilla upp sælkerapakka sem mun fullkomna rómantískt kvöld fyrir ástina.
Fyrir lakkrísunnendur er þessi ljúffengi ástarlakkrís frá Lakrids by Bulow en innan í lakkrísnum leynist hjarta. Þetta er góð leið til að tjá ástina sína ef ástríðan ástarinnar fyrir lakkrís er til staðar. Svo er lakkrísinn í fallegum umbúðum og fagurkerar kunna vel að meta fallegar umbúðir með góðgæti í.
Bjóddu ástinni þinni í heilnæma stund og kræsingar
Hvernig væri að fagna ástin með ástarfundi í heilsulindinni á Iceland Parliament Hótelinu við Austurvöll? Þvílíkur unaður að njóta þess að eiga nærandi og góða stund í góðu spa og fá búbblur í glas og bakka með sætu kræsingum sem kitla bragðlaukana. Síðan er hægt að fara sig upp á veitingastaðinn Hjá Jóni og fá sér dýrðlegan kvöldverð og láta stjana við sig innan fallega list og fallegt útsýni yfir Austurvöll.
Í tilefni Valentínsusardagsins verður veitingastaðurinn í hjarta miðborgarinnar, Duck & Rose, með glæsilegan ástarseðil ásamt því sem tónlistarkonan Bjartey spilar ljúfa tóna. Þú getur því boðið ástinni þinni upp á rómantískan kvöldverð og hugljúfa tóna Bjarteyjar í tilefni dagsins.