Bergur Vilhjálmsson, göngugarpur og hörkutól, hefur lokið tuttugu kílómetrum af hundrað kílómetra göngu sinni um Hvalfjörðinn frá Akranesi í Grafarholt. Hann lagði af stað klukkan 14 í dag.
Þegar blaðamaður ræddi við Berg var hann að undirbúa sig undir það að halda aftur af stað eftir smá matarpásu, nú tuttugu kílógrömmum léttari en í upphafi göngunnar, með 190 kíló í eftirdragi.
Bergur gengur til söfnunar fyrir Píeta-samtökin og til að heiðra minningu móður besta vinar síns. Mun hann losa sig við 10 kíló af sleða sem hann dregur fyrir hverja 10 kílómetra sem hann gengur. Hvert lóð merkir einkennisorð andlegra örðugleika.
„Þetta verður vonandi aðeins auðveldara,“ segir Bergur í samtali við mbl.is.
Aðspurður segir Bergur gönguna ganga vonum framar, það sé enn fullt af fólki með honum og einhverjir sem ætli sér að ganga með honum í alla nótt. Hann kveðst þó vera orðinn örlítið lúinn og dálítið kalt.
Bergur lætur smá kulda þó ekki á sig fá og þakkar fyrir allt það fólk sem hefur lagt honum lið.
„Maður er svo þakklátur fyrir þetta fólk að leggja manni lið. Það er bara ótrúlegt.“
Það er greinilegt að það eru margir sammála þér um mikilvægi málstaðarins.
„Algjörlega,“ segir Bergur.
Hægt er að fylgjast með Bergi í beinu streymi hér:
Hægt er að styrkja söfnun Bergs með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:
Reikningsnúmer: 0301-26-041041
Kennitala: 410416-0690.
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218.