„Ég get sagt það að eitt er að gera athugasemd við umfjöllun og annað er að segja að um sé að ræða staðreyndavillur. Ég held að fólk þurfi að átta sig á því.“
Þetta segir Baldvin Þór Bergsson, ritstjóri Kastljóss, inntur eftir viðbrögðum við tilkynningu Reykjavíkurborgar um að alvarlegar staðreyndavillur hafi verið í umfjöllun Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur um samninga borgarinnar við olíufélög um uppbyggingarreiti.
Í samtali við mbl.is segir Baldvin málið vera á borði skrifstofustjóra RÚV sem skoði hvort um raunverulegar staðreyndavillur sé að ræða. Leiði skoðun í ljós að svo sé verði þær að sjálfsögðu leiðréttar.
Greindi Baldvin Vísi frá því í gær að hann sæi ekki sem svo að neinar staðreyndavillur væru í umfjölluninni.
Spurður um fullyrðingar borgarinnar um að verðmat á byggingarrétti Haga fyrir bensínstöðvalóðirnar hafi verið 1,2 milljarðar, en ekki 3,9 milljarðar eins og skilja mátti í þættinum, segir Baldvin umfjöllunina vitna í fjárfestakynningu Haga.
„Í innslaginu segir ekki að þessi tala sé eingöngu vegna bensínstöðvalóða. Það bara kemur ekki fram í innslaginu. Ef að svo væri, þá væri það staðreyndarvilla en það er bara ekki textinn í innslaginu,“ segir Baldvin, en Reykjavíkurborg sagði að inn í 3,9 milljarða tölunni væri m.a. verðmæti lóða í Norður-Mjódd, við Klettagarða og við Nýbýlaveg.
Ítrekar Baldvin að komi í ljós að einhverjar staðreyndavillur hafi verið í umfjölluninni verði þær leiðréttar.
„Þangað til ætla ég ekkert að tjá mig meira um þetta til að viðhalda þessum asnalega fréttahring,“ segir Baldvin að lokum.