Ungverska liðið Veszprém fer með eins marks forskot í seinni leik sinn við Aalborg frá Danmörku í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir ótrúlegan heimasigur, 32:31, í fyrri leik liðanna í Ungverjalandi í kvöld.
Aalborg var með yfirhöndina stóran hluta leiks og var staðan 17:12 í hálfleik og 21:15 snemma í seinni hálfleik. Þá skoraði Veszprém fjögur mörk í röð og minnkaði muninn í tvö mörk, 21:19.
Eftir mikla spennu reyndist Veszprém svo sterkara á lokametrunum og vann sætan endurkomusigur.
Bjarki Már Elísson átti glimrandi fínan leik fyrir Veszprém, skoraði fimm mörk og var með 100 prósent nýtingu.